Beint í efni

Kjarasamningur við ríkið samþykktur

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning við ríkið er lokið

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning milli SBU og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs lauk í dag kl. 10:00.

Samningurinn er með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.

Fjöldi á kjörskrá var 95 og greidd atkvæði voru 39 eða 41%. 37 (95%) voru samþykk og 2 (5%) höfnuðu samningnum.

Nýjan kjarasamning og nýja launatöflu má finna hér.