Kjarasamningur við Reykjavíkurborg samþykktur
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning við Reykjavíkurborg er lokið
Atkvæðagreiðslu um kjarasamning milli SBU og Reykjavíkurborgar lauk í dag kl. 10:00.
Samningurinn er með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.
Fjöldi á kjörskrá var 21 og greidd atkvæði voru 14 eða 67%. Öll voru samþykk og engin hafnaði samningnum.